Psalms 100

1Þakkarfórnar-sálmur. Öll veröldin fagni fyrir Drottni! 2Þjónið Drottni með gleði, komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng! 3Vitið, að Drottinn er Guð, hann hefir skapað oss, og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð. 4Gangið inn um hlið hans með lofsöng, í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans. 5Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.
Copyright information for Icelandic